Kría fjárfestir í Frumtaki 4 slhf.
Kríu – sprota- og nýsköpunarsjóði barst ein umsókn um fjárfestingu á síðasta umsóknartímabili sem var frá 15. janúar 2024 til og með 12. apríl 2024. Heildarfjárhæð sem Kría hafði til fjárfestinga á þessu tímabili var allt að 1 milljarður króna. Umsókn frá Frumtaki 4 slhf. uppfyllti skilyrði um fjárfestingu frá Kríu skv. 5. gr. reglugerðar nr. 225/2021, sbr. lög nr. 65/2020.