Sprota- og nýsköpunarsjóður
Fjárfest til nýsköpunar
Fjárfest í nýsköpun
Sprota- og nýsköpunarsjóður
Kría sprota- og nýsköpunarsjóður er sjálfstæður sjóður í eigu íslenska ríkisins tileinkaður fjárfestingum í sérhæfðum fjárfestingasjóðum.
Kría er framtak sem er ætlað að efla fjármögnunarumhverfi sprota- og nýsköpunarfyrirtækja á Íslandi. Sem sjóðasjóður mun Kría fjárfesta í öðrum sérhæfðum fjárfestingarsjóðum, svokölluðum vísisjóðum (e. venture capitalfunds), sem síðan fjárfesta í sprotafyrirtækjum með mikla vaxtarmöguleika.
Vísisjóðir eru þekktir sem „venture capital funds“ á ensku og sérhæfa sig í fjárfestingum í áhættusömum en jafnframt spennandi sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum. Markmið Kríu er að styðja við vöxt slíkra sjóða á Íslandi og efla þannig fjármögnunarumhverfi sprotafyrirtækja á Íslandi.
Kría er mikilvægur þáttur í nýsköpunarstefnu stjórnvalda sem ætlað er að stuðla að aukinni samkeppnishæfni íslenskra sprotafyrirtækja á erlendum mörkuðum og auknum útflutningi byggt á hugviti og í hugverkaiðnaði.
Fréttir og tilkynningar
Fjárfestingar
Kría er sjálfstæður sjóður tileinkaður fjárfestingum í vísissjóðum til að efla grósku í frumkvöðlastarfi á Íslandi.
kriaventures@kriaventures.is